Nú erum við að leggja í'ann í Grímseyjarskóla. Þemadagarnir búnir en þeir snérust um heimabyggðina. Við gerðum margt skemmtilegt, veltum fyrir okkur framtíðarmöguleikum, hvað hér er vel gert og hvað betur má fara. Við fórum í vettvangsferð og nemendur settu sig í spor ferðamanna sem koma úr ferjunni og var okkur öllum boðið óvænt í hamborgaraveislu á veitingastað eyjunnar, Kríunni. Nemendur gerðu svo ritunarverkefni sem fólst í því að þau skrifuðu bréf „heim“ og voru þau bréf metnaðarfull og skemmtileg. Nú eru nemendur að leggja lokahönd á myndbandsverkefni þar sem þau búa til fréttaþátt sem samanstendur af spennandi Grímseyjar-fréttum. Við byrjuðum líka að fara aðeins yfir nýju skólareglurnar okkar og krakkarnir bjuggu til spjöld með nokkrum umgengnisreglum.
Í dag er síðasti sumar-ferjudagur og ferjan komin í glæsilegan búning eftir Akureyrarvöku. Við fórum því í gönguferð niður á höfn og skoðuðum þetta fallega listaverk eftir listamanninn Guido van Helten sem meðal annars hefur unnið listaverk í miðbæ Akureyrar. Svo skemmtilega vildi til að listamaðurinn var um borð í ferjunni ásamt heimildamyndagerðarkonu sem ætlar að eiga við okkur spjall á Kríunni á eftir.
Á döfinni:
Á morgun ætlum við að mála leiktækin á leikvellinum okkar. Þannig höldum við áfram að leggja rækt við heimabyggðina okkar og nærumhverfi. Síðan byrjar skólinn á fullu samkvæmt stundaskrá á miðvikudaginn.
Eins og margir vita ferðast Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, nú um landið og skrifar undir þjóðarsáttmála um læsi. Við ætlum að sjálfsögðu að vera með og núna á miðvikudaginn 8. september, á Alþjóðadegi læsis, hrindum við af stað lestrarátaki í Grímseyjarskóla. Við erum búin að setja upp bókaormshöfuðið og þá er bara að bæta á hann búknum hægt og rólega í vetur. Nafn á bókaorminn var kosið í lýðræðislegri kosningu og varð á endanum fyrir valinu nafnið Engilbert Sigurlína. Mannanafnanefnd hefur ekkert að segja þegar kemur að bókaormum svo við ákváðum að velja eitt kvenmanns- og eitt karlmannsnafn.
Í morgun héldum við fund með krökkunum þar sem við vöktum athygli á ástandinu í Sýrlandi og þeirri neyð sem margt flóttafólk býr við. Við ræddum hvernig við gætum lagt okkar að mörkum. Niðurstaðan varð sú að við ætlum að halda fjáröflun upp úr miðjum september þar sem við syndum og söfnum. Segjum betur frá því síðar.
Við höfum sett okkur það markmið að vera sýnileg í vetur. Ekki bara ætlum við að vera dugleg að nota endurskinsmerki heldur ætlum við líka að vera dugleg að vera sýnileg á facebook og hér á þessari síðu. Verið dugleg að fylgjast með!
Með bestu kveðju, Sigrún