Í gær var haldið upp á afmælisdag Daniels Willards Fiske, velgjörðarmanns Íslendinga en þó sérstaklega Grímseyinga. Hann var Bandaríkjamaður sem var heillaður af Norðurlöndum, kom hingað til lands árið 1879 og sigldi framhjá Grímsey á ferð sinni í kringum landið. Hann var svo heillaður af töffaraskapnum í fólkinu sem hérna bjó að hann gerðist sérstakur velgjörðarmaður þeirra. Ég hvet áhugasama um að lesa um manninn.
Í tilefni af afmælinu er haldin kökuveisla ár hvert á vegum kvenfélagsins og öllum í eyjunni boðið til að minnast afmælisbarnsins. Auk þess hefur skapast hefð fyrir því að grunnskólabörnin séu með einhverja sýningu á þessum degi. Í ár vorum við ansi heppin því hér eru hjá okkur tveir gestakennarar, frænkurnar Inga Matthíasdóttir og Lea Gestsdóttir Gayet, (meira um þær hér) ættaðar frá Grímsey enda drifkrafturinn slíkur að skellt var í danssýningu og síðan sungu krakkarnir á frönsku. Dásamlegt. Krakkarnir sýndu líka myndbönd en við höfum unnið hörðum höndum að gerð þeirra.
Við horfðum saman á kvikmyndina The Truman Show í skólanum og gerðum svo myndband sem innblásið er af efni myndarinnar. Myndin fjallar um Truman, mann sem býr í sjónvarpsþætti. Hann býr í risastóru stúdíói þar sem allir í kringum hann eru ráðnir leikarar og allt sem þeir gera fer eftir fyrirfram ákveðnu handriti. Þessu eru öllu stýrt úr stjórnstöð þar sem leikstjóri þáttarins situr ásamt aðstoðarfólki. Hann fer síðan að gruna að eitthvað sé athugavert við líf sitt en ég vil ekki segja meira um það heldur hvet alla til að horfa á myndina.
Í stuttmyndinni okkar er Grímsey yfirgefin eyja, allir íbúar farnir en blekkingarleik viðhaldið til að lokka að ferðamenn og selja þeim sem mest af handverki. Þannig að þegar von er á ferðamönnum þá eru kallaðir út leikarar sem sjá um að manna eyjuna og þurfa þeir jafnvel að leika fleiri en einn eyjarskeggja á meðan á meðan á dvöl ferðamannanna stendur. Starfsmenn í stjórnstöð fylgjast með ferðum ferðamannanna um eyjuna og stýra leikurunum í takt við þær. Við gerð myndarinnar notuðumst við við söguramma þannig að hvert atriði var fyrirfram skipulagt og leitast við að nýta tíma og tökustaði sem best. Krakkarnir stóðu sig stórkostlega vel og við vorum meira að segja búin að ganga frá öllu nokkrum dögum fyrir sýningardaginn.
Hitt myndbandið inniheldur fjórar gamansögur af foreldrum barnanna. Þær halda á lofti þeirri gullnu reglu að láta ekki góða sögu gjalda sannleikans. Þær eru unnar út frá hugmyndum krakkanna við unnum saman að útfærslu og framkvæmd. Til hamingju krakkar!