Í þessari viku höfum við brotið upp skólastarfið með heilsuviku. Við lögðum því bóknámið til hliðar þessa vikuna og höfum fengið til okkar tvo gestakennara, þær Ingu Matthíasdóttur og Leu Gestsdóttur Gayet. Þær eru báðar ættaðar héðan úr Grímsey og báðar búnar að vekja mjög mikla lukku bæði hjá nemendum og kennurum Grímseyjarskóla. Inga kennir sund, íþróttir og dans og Lea kennir frönsku og heimsspeki. Þetta hefur því verið mjög óvenjuleg vika hjá okkur en sannarlega spennandi og skemmtileg. Kennararnir hafa séð um að matbúa fyrir börnin hollan og góðan mat í hádeginu svo þau hafi orku til að gera sitt besta í öllu því sem þau taka sér fyrir hendur. Á hverjum degi er boðið upp á krefjandi hreyfingu fyrir nemendur: dans, þol- og styrktarþjálfun, sund og/eða jóga auk andlegrar næringar í formi frönskunáms fyrir byrjendur og heimsspekilegs spjalls. Við settum líka upp næringartöflur til að við gætum skoðað ýmis matvæli og hvers virði þau eru okkur þegar kemur að orku. Aðaláherslan er því lögð á hreysti og mikilvægi þess.
Í tilefni af Fiske-afmælinu í gær var blásið til mikillar veislu eins og ár hvert en í þetta sinn slóu nemendur öll met þegar þau sýndu marseringu og skottís auk þess að kynna sig og syngja á frönsku fyrir afmælisgesti eftir aðeins örfárra klukkustunda æfingu. Geri aðrir betur!
Það er öllum til góða að fá nýtt blóð inn í skólann. Krakkarnir okkar njóta þess að læra eitthvað nýtt og það að fá fleiri raddir skapar öflugri samræðu í skólastarfinu. Við erum því mjög þakklát þeim frænkum fyrir að hafa nært okkur með nýjum fróðleik og hreyfingu og vonum að þær njóti verunnar hérna hjá okkur.