Þessa vikuna er svokölluð LEN – vika hjá okkur í Grímseyjarskóla. Skammstöfunin LEN stendur fyrir Leiðtogar í eigin námi en það er þróunarverkefni sem við vinnum að ásamt Hríseyjarskóla.
Hugmyndafræði verkefnisins kemur upprunalega frá Sudbury Valley School í Bandaríkjunum en eftir þeirri hugmyndafræði er unnið í rúmlega 60 skólum víðsvegar um heiminn.
Þá skipuleggja nemendur sitt eigið nám frá grunni út frá sínum áhugamálum, taka lýðræðislegar ákvarðanir í félagi við starfsmenn skólanna og vinna á sínum forsendum.
Við höfum aðlagað og staðfært þessa hugmyndafræði að hluta og gert úr henni skemmtilega uppbrotsviku. Nemendur skipulögðu vikuna sína í síðustu viku og bjuggu til áætlun til þess að fara eftir. Markmiðin eru helst þau að þjálfast í að skipuleggja sig, taka ábyrgð á eigin námi og að sjálfsögðu að hafa gaman!
Krakkarnir hafa brallað ýmislegt það sem af er viku. Hér er reiknað, teiknað, lesin Laxdæla jafnt sem skáldsögur og textabækur í dönsku og ensku, gerðar tilraunir með hinum ýmsu efnum og sullað svolítið í leiðinni, framleidd stop-motion myndbönd, grúskað í forritun og æfð förðun og hárgreiðsla.
Nokkrar myndir fá að fljóta með!