Nú er komið vel fram í október og skólastarfið hjá okkur komið á fullt skrið. Við höfum ýmislegt brasað; farið í plöntusöfnunarferð og í plöntugreiningu í framhaldinu, stúderað landnám Íslands og Eldri deildin er komin vel á veg með Laxdælu. Að auki framleiða þau hvert listaverkið á ætur öðru.
Meiri hluti nemendanna prófaði einnig að fara í hina ýmsu skóla í landi á meðan flest fullorðna fólkið í eyjunni stakk af til útlanda í tvær vikur.
Á döfinni hjá okkur núna, auk hins hefðbundna, er undirbúningur fyrir Halloween en nemendafélagið stendur fyrir Hrekkjavökupartýi á föstudaginn með leikjum, veitingasölu og diskóteki. ALLIR VELKOMNIR! 500 kr. inn :)
Svo er Fiske-afmæli á næsta leiti þar sem nemendur Grímseyjarskóla eru samkvæmt venju stór hluti dagskrár.
Ein mynd í tilefni Hrekkjavöku en fleiri koma inn eftir partý til að spilla ekki upplifun partýgesta.