Þá erum við komin í fullan gang þetta haustið. Það er fámennt en góðmennt hjá okkur, og allir í eldri deild, sem einnig gerir okkur kleift að haga kennslunni á nýjan hátt. Skipulagið sem við erum að prófa okkur áfram í núna er þannig að bókfögin; enska, danska. stærðfræði og íslenska sameinast að miklu leiti í svokallaðar vinnustundir sem ná yfir meirihluta morgnanna, þó eru stýrðir tímar á mánudagsmorgnum og áætlunartími í vikulok svo nemendur og kennarar hafi yfirsýn yfir vikuna. Þá eru nemendur með áætlanir í þessum fögum og vinna þær eftir hentugleika, svo fremi sem þau skili unninni áætlun í vikulok. Þetta er heilmikið frelsi, þar sem nemendur eru ekki skikkaðir í ákveðið fag á ákveðnum tíma og kennir þeim þar að auki að taka ábyrgð á eigin námi. Einn nemandi í 5. bekk bjó til málshátt af þessu tilefni: "Leiðinlegt er betur unnið fyrst".
Seinnipart skóladagsins eru svo samfélagsgreinar og list- og verkgreinar, sem eru kenndar í lotum, auk íþrótta þrisvar í viku. Þetta fyrirkomulag má sjá betur á stundatöflunni sem er undir "skólastarfið -> stundaskrár" hér í borðanum fyrir ofan.
Þar er einnig kominn nýr hnappur að nafni "Læsi er lykillinn" sem er slóð á síðu læsisstefnu Akureyrarbæjar.
Í öðrum fréttum hefur Grímseyjarskóli (og þ.a.l. félagsheimilið Múli) nú tekið upp virka flokkun. Eru nú komnar sérstakar ruslatunnur fyrir pappír, fernur og plast auk þess sem tilfallandi ál er tekið frá. Lífrænn úrgangur á það svo til að enda í goggi fiðurfénaðs eyjarinnar.
Í skemmtilegustu fréttunum er nýi ærslabelgurinn okkar Grímseyinga! Hann er staðsettur sunnan við skólann og kemur sennilega til með að verða vinsælasta leiktæki barnanna, já og þeirra fullorðnu. Við þurfum bara að leysa vandamálið með bleytuna á morgnana, erum að spá í að kaupa sundlaugarsköfu!
Þetta eru svona aðalfréttirnar úr skólastarfi Grímseyjarskóla að svo stöddu. Þangað til næst - góðar stundir!
-knh