Það hefur ýmislegt á daga okkar hér í Grímseyjarskóla drifið síðan síðast. Þann 11. nóvember var þjóðhátíðardagur okkar Grímseyinga, Fiske-afmæli í daglegu tali, haldinn hátíðlegur. Um Daniel Willard Fiske og hátíðina má lesa betur um undir Grímsey hér á síðunni. Samkvæmt venju er atriði frá skólabörnum stór hluti hátíðahaldanna og þetta árið höfðu þau samið, leikið í og framleitt stuttmynd í „skaups-stíl“ og sýnt við góðar undirtektir.
Þann sama dag hafði sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi ráðgert að heimsækja eyna og skólann. Þó setti veðrið strik í reikninginn eins og vill stundum verða og ekki var flogið til Grímseyjar þennan daginn. Sendiherrann og hans fylgdarlið létu þó ekki deigan síga og flugu til okkar á sunnudeginum í nokkuð tvísýnu veðri. Þá náði hann að skoða vitann, Fiske-safnið og skólann áður en kallað var út í vél í skyndi vegna veðurútlits.

Stelpurnar í Eldri deild litu við í skólanum á frídegi til að spjalla við gestina.
Á myndini eru, frá vinstri: Alexander sonur sendiherrans, Robert Barber sendiherra, Sigrún Edda 8. bekk, Helga Hrund 7. bekk, Brá 6. bekk, Katrín Nicola 8. bekk, Karen Nótt skólastjóri og Jeremy aðstoðarmaður sendiherrans.
Síðastliðinn þriðjudag, þann 13. desember, héldum við svo Lúsíuhátíðina okkar. Það er hefð sem Helga Mattína, kona Dónalds fyrrum skólastjóra og kennari við skólann, kom á fyrir mörgum árum. Þá er foreldrum og öðrum aðstandendum boðið til okkar seinni part dags og er elsta stúlkan sem ekki hefur verið Lúsían áður, Lúsía ársins með ljósakórónu á höfði. Krakkarnir syngja svo staðfærða útgáfu af Santa Lucia fyrir gesti og í ár sungu þau einnig Grýlukvæði auk þess að sýna myndband þar sem þau höfðu, ásamt Guðrúnu Ingu kennara, samið jólasögu, lesið hana inn á Ipadinn og teiknað myndir við og Guðrún skeytt saman í IMovie. Að lokum var gestum boðið upp á kaffi og smákökur (3 sortir!) sem höfðu verið bakaðar um daginn.
Því miður láðist alveg að taka myndir en þið verðið bara að sjá þetta fyrir ykkur ;)
Framundan eru svo örfáir skóladagar og Litlu-jól skólans sem verða síðdegis þriðjudaginn 20. desember. Eftir þau fara allir í notalegt jólafrí sem verður væntanlega vel þegið J
Gleðileg jól öll sömul og hafið það sem allra best yfir hátíðirnar!